Fóðrun Lagna FÓÐRUN NEYSLUVATNSLAGNA - FYRIRBYGGJANDI VIÐHALD! -Varanleg ryðvörn – endurnýjun lagna án uppbrots.Það er staðreynd að sinkhúðaðar stállagnir tærast mjög hratt með tilheyrandi ryðmyndun, stíflu og leka. Með fyrirbyggjandi fóðrun er hægt að koma í veg fyrir áframhaldandi skemmdir á lögnum. Fóðrun lagna er varanleg og hagstæð lausn án uppbrots, óþæginda og utanáliggjandi lagna. Fóðrunarkerfið og efnin voru sérstaklega hönnuð fyrir fóðrun neysluvatnslagna sem umhverfisvæn lausn til þess að koma í veg fyrir tæringu, ryðmyndun, leka og til þess að tryggja framlengdan líftíma lagna. Fóðrunarefnið er vottað af BASTA, metið og samþykkt af Byggvareubdömningen í Svíþjóð. Hægt er að fóðra allar lagnategundir og stærðir frá 6mm og stærra. Með okkar efni er hægt að fóðra stál, kopar, plast og galvaniseraðar lagnir. Hreinar Lagnir - Fóðrun lagna.Frábær, viðurkennd og vottuð lausn til þess að endurnýja gamlar lagnir. VANDAMÁLIÐTæring, ryðmyndun, stífla og lekiHvað veldur þessum skemmdum? Mesti tæringarhraðinn er fyrstu 1-5 árin svo hefst ryðmyndun. Efnainnihald og hitastig vatns Mjúkt, efnasnautt með með lágu ph gildi Neysluvatn úr dýpri borholum Vatnsstreymi Hönnun lagna, lagnaleiðir Efnisval lagna Álag á lögnum og minni einangrun Rafleiðni Varmaskiptir – aukin selta örvar efnahvörf Sýnileg einkenni ! Ryðlitað neysluvatn Minni vatnsþrýstingur Tæring og ryð í lögnum minnka gæði neysluvatnsins. Ryðkorn í sigtum Stífla vegna ryðútfellinga Leki á lögnum vegna tæringa LSE-System tæknin er frábær forvörn gegn tæringu og leka Ekki ráðlegt að setja varmaskipt á neysluvatnið Fóðrun lagna að innan veitir mjög slitsterka og endingargóða vörn gegn tæringu, ryðmyndun og leka. Í neysluvatnslögnum er nýja húðin um 0.5-1mm þykk eftir því hve miklar tæringaskemmdirnar eru. Hreinar Lagnir nota nýjustu og bestu tækni í fóðrun og endurnýjun lagna án uppbrots og óþæginda fyrir viðskiptavini á verktíma.